16.12.1957
Neðri deild: 40. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)

Bréfaskipti forsætisráðherra Sovétríkjanna og Íslands

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það var út af fsp. hv. 1. þm. Reykv. (BBen) í sambandi við bréfið frá forsætisráðherra Sovjetríkjanna til Hermanns Jónassonar, forsrh. Íslands. Hann spurði, hvort þetta bréf mundi verða birt.

Bréfið verður birt og verður sent blöðunum í dag til birtingar og útvarpi.

Hv. þm. spurði, hvernig mundi verða unnið að svari við bréfinu.

Bréfið er til forsrh. Hermanns Jónassonar, og mun hann ákveða, hvernig hann vinnur að svarinu og við hverja hann ráðgast um svarið.