29.04.1959
Sameinað þing: 44. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (458)

1. mál, fjárlög 1959

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Þegar þetta mál var afgreitt í fjvn., lágu engar upplýsingar þar fyrir um, að það ætti að leysa á annan veg, en með fjárveitingu á fjárl. Þær upplýsingar liggja ekki heldur fyrir hér, hvernig það á að gera, aðeins sagt, að það eigi að gerast. Fyrst þingmönnum er ekki kunnugt um, hvernig það á að gerast, þá óska ég eftir því, að þessar tillögur verði látnar ganga hér undir atkvæði.