27.07.1959
Efri deild: 4. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

5. mál, stjórnarskrárnefnd

Forseti (EggÞ):

Ég vil í tilefni af þessum orðum síðasta ræðumanns taka það fram, að ég skírskota aðeins til þess, sem sagt hefur verið í framsögu fyrir málinu, en svo vill nú til, að ég er einn af flm. málsins. Að öðru leyti man ég ekki svo gjörla þingsöguna í einstökum atriðum, að ég get nú þegar frætt hv. þm. í þessum efnum, sem setið hefur hér mun lengur en ég.