20.12.1960
Neðri deild: 44. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (1717)

Starfsmenn þingsins

forseti (JóhH):

Þar sem þetta er væntanlega síðasti fundur Nd. fyrir þinghlé vegna jólanna, vil ég mega nota tækifærið til þess að óska öllum hv. þm. gleðilegra jóla. Ég vildi mega vænta þess, að þeir fengju notið jólahelginnar með fjölskyldum sínum, og þeim, sem fara um lengri veg, óska ég góðrar ferðar og góðrar heimkomu. Jafnframt vil ég óska þm. öllum gleðilegs árs og þakka þeim fyrir góða samvinnu og umburðarlyndi við mig sem forseta á hinu liðna ári. Ég vil svo að lokum óska þess, að við megum allir hittast heilir að þinghléinu loknu á nýju ári til framhaldandi starfa.