30.01.1961
Efri deild: 49. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (1953)

172. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra, forseti. Þetta frv. er hið síðasta þeirra, sem eru í tengslum við erfðalagafrv., og er ekki annað um það að segja en að efni þess er um það, hvernig meta skuli ættaróðal, þegar til skipta kemur, og sýnist það í raun og veru vera sjálfsagt og ekki annað en það, sem liggur í hlutarins eðli, en réttara hefur þótt að setja um það bein lagafyrirmæli.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.