08.11.1962
Sameinað þing: 10. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (1891)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (FS):

Frá forseta neðri deildar hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 8. nóv. 1962.

Einar Ingimundarson, 4. þm. Norðurl. v., hefur í gær ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að fyrsti varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Jón Pálmason bóndi á Akri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Jóhann Hafstein,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs þings.“

Samkv. þessu tekur Jón Pálmason nú sæti á Alþingi í fjarveru Einars Ingimundarsonar. Hann er þegar mættur hér, og býð ég hann velkominn, enda hefur hans kjörbréf áður verið samþykkt.