12.03.1963
Efri deild: 55. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (635)

173. mál, happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég þakka hv. frsm. fyrir þessi svör. En ég vil ítreka þær tvær fyrirspurnir mínar, sem ekki var tækifæri til að svara nú, að svar komi við þeim við 3. umr. þessa máls. Þær eru: Hvað hefur dvalarheimili aldraðra sjómanna kostað til þessa, og hverjar eru heildartekjur, sem komið hafa af happdrættinu til og með síðustu áramótum?