25.03.1963
Efri deild: 61. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (803)

139. mál, ríkisábyrgðasjóður

Fjmrh. (Gunnur Thoroddsen):

Herra forseti. Við 2. umr. óskaði hv. 1. þm. Norðurl. e. eftir nánari upplýsingum um tvö atriði í skránni um áfallnar ríkisábyrgðir á árinu 1962. Í samræmi við þá ósk hefur verið samið svar eða upplýsingar út af þessum fyrirspurnum og hafa þær verið afhentar hv. fjvn., og mun hv. fyrirspyrjandi hafa fengið þau svör.