24.02.1964
Sameinað þing: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 22. febr. 1964.

Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir í embætti mínu leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Óskar Jónsson fulltrúi, taki á meðan sæti mitt á Alþingi„

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Óskars Jónssonar liggur fyrir, og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]