04.05.1964
Neðri deild: 89. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2233 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 2. maí 1964.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.

Davíð Ólafsson,

6. landsk. þm.

Samkv. þessu tekur Ragnar Jónsson nú sæti Davíðs Ólafssonar á Alþingi, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.