16.03.1964
Neðri deild: 69. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (624)

15. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Síðan nál. um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar var gefið út, hefur allshn. borizt ein umsókn um ríkisborgararétt, þar sem umsækjandinn fullnægir settum skilyrðum fyrir veitingu ríkisborgararéttar síðar á þessu ári. Flytur n. á þskj. 379 brtt. við frv. þar sem lagt er til, að þessi umsækjandi öðlist íslenzkan ríkisborgararétt síðar á þessu ári, þegar hann hefur dvalizt lögmæltan tíma hér á landi.