21.03.1966
Neðri deild: 57. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2814 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 18. marz 1966. Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, óskar Jónsson fulltrúi, Selfossi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl.

Til forseta neðri deildar.“

Óskar Jónsson hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili, og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Býð ég hann velkominn til setu í hv. þd.

þá hefur forseta borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 18. marz 1966.

Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Daníel Ágústínusson fyrrv. bæjarstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl.

Til forseta neðri deildar.“

Daníel Ágústínusson fyrrv. bæjarstjóri hefur áður átt sæti á Alþ. á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég býð hann því velkominn til setu í hv. þd.