24.11.1966
Efri deild: 18. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (216)

66. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vildi aðeins bæta því við eða taka það fram, að fé er fyrir hendi til þess að greiða stofnkostnað allra þeirra stöðva, sem ég nefndi, svo að engrar lántökuheimildar er þörf.