05.04.1968
Neðri deild: 90. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

20. mál, kosningar til Alþingis

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég tel það óheppilega málsmeðferð að blanda svo viðkvæmu deilumáli sem þessari till. inn í umr. um aðalefni frv., eins og það var upphaflega lagt fyrir. Ég fortek þó ekki, að till. styðjist við ýmis réttmæt rök. Hins vegar hefði ég talið heppilegra að fresta endanlegri ákvörðun um þetta efni um sinn og segi nei.