20.12.1967
Sameinað þing: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

Þingfrestun og þinghlé

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 88. löggjafarþings, frá 20. desember 1967 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 16. janúar 1968.

Gjört í Reykjavík, 19. desember 1967.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 88. löggjafarþings, er frestað frá 20. desember, og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 16. janúar 1968.

Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.