07.12.1967
Neðri deild: 35. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

52. mál, sveitarstjórnarlög

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt til samræmis við þau önnur frv., sem áður hafa verið lögð fram hér á hv. Alþ. varðandi lækkun kosningaraldurs úr 21 ári í 20 ár og fjallar um, að sama ákvæði gildi varðandi kosningar til sveitarstjórna. Að öðru leyti tel ég ekki þörf á að viðhafa frekari skýringar með frv., en óska þess, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.