24.03.1969
Efri deild: 62. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2197 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (JR):

Deildinni hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Páli Þorsteinssyni:

„Vegna aðkallandi starfa heima fyrir get ég ekki sinnt þingstörfum næstu vikur. Leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. nr. 52 frá 1959 um kosningar til Alþingis vil ég óska þess, að fyrsti varamaður Framsóknarfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.

Páll Þorsteinsson.“