04.12.1968
Sameinað þing: 17. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í D-deild Alþingistíðinda. (3704)

80. mál, Vestfjarðaáætlun

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. lét þess getið áðan í ræðu sinni, að nú mætti sjá fyrir endann á Norðurlandsáætlun svonefndri. Það var gleðilegt að heyra, en ég hefði viljað fara fram á það við hæstv. ráðh., að hann léti okkur þm. Norðlendinga hafa þessa áætlun til athugunar hið allra fyrsta, jafnvel þó eftir sé að skrifa eitthvað í endann á henni. Það er sannarlega kominn tími til, að þm. fái að kynnast þessu plaggi.