14.05.1969
Sameinað þing: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í D-deild Alþingistíðinda. (4023)

244. mál, lán og styrkir úr atvinnubótasjóði og atvinnujöfnunarsjóði

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):

Herra forseti. Á þskj. 640 hef ég leyft mér að beina svofelldri fsp. til hæstv. félmrh. (Gripið fram í.) Mér er tjáð, að það hefði verið rétt að beina fsp. til hæstv. fjmrh. Fsp. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

Hvernig skiptast lán og styrkir atvinnubótasjóðs og atvinnujöfnunarsjóðs á einstök kjördæmi frá og með stofnun atvinnubótasjóðs 1962 til síðustu áramóta?

Vona ég, að hæstv. ráðh. gefi glögg svör við þessari fsp.