29.04.1970
Neðri deild: 90. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)

78. mál, skipan opinberra framkvæmda

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Út af fsp. hv. 1. þm. Norðurl. e. vil ég upplýsa, að gert er ráð fyrir, að frv. taki til framkvæmda eins og hafna, en það er ekki á þessu stigi a. m. k. ætlað, að það taki til vegaframkvæmda, sem falla undir sérstakan þátt opinberra framkvæmda. En þó eru heimildir í frv. til þess að taka bæði vegaframkvæmdir svo og allar ríkisframkvæmdir undir þessi lög. Það eru heimildir til þess, en það er ekki kveðið svo á í frv., eins og það er.