19.12.1969
Efri deild: 32. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

Þinghlé

forseti (JR):

Væntanlega verður þetta síðasti fundur í hv. Ed. fyrir þinghlé. Ég vil því óska öllum hv. þdm. og vandamönnum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og jafnframt öllu starfsliði Alþingis. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vona, að við hittumst öll hér heil að jólaleyfi liðnu.