13.01.1970
Neðri deild: 36. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

9. mál, Rafmagnsveitur ríkisins

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Það er aðeins út af því, að ég veit, að það hefur á síðasta ári starfað rannsóknarnefnd við að kanna fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins, og mér er tjáð, að það muni vera komið út nál., eða a.m.k. hafi n. þessi lokið störfum og skilað allmiklu nál., sem mig langaði til að beina þeirri fsp. til hæstv. ríkisstj., hvort við alþm. mundum ekki mega vænta þess að fá þetta nál. á borðin.