13.01.1970
Neðri deild: 36. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

9. mál, Rafmagnsveitur ríkisins

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta skal verða tekið til athugunar, sú ósk, sem felst í þeirri aths. eða fsp., sem hv. þm. gerði. — Eins og kunnugt er, hafa þessi mál skipt um rn. nú um áramótin, vegna nýrrar reglugerðar um stjórnarráðið, og fellur nú meðferð orkumálanna undir iðnrn. Eins og gefur að skilja er ýmislegt við slíka breytingu, sem þörf er að athuga af nýjum mönnum, sem þar koma til, en ég skal láta athuga það nánar, án nokkurrar tafar, að verða við þessari ósk, sem hér hefur borizt.