04.04.1971
Sameinað þing: 45. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (2358)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Alþingi, 91. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag, miðvikudaginn 7. apríl 1971.

Gert í Reykjavík, 7. apríl 1971.

Kristján Eldjárn.

Jóhann Hafstein.

Forsetabréf um þinglausir.“

Samkv. þessu bréfi, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég þakka alþm. störf þeirra og óska þeim velfarnaðar. Þjóðinni allri óska ég heilla og blessunar og bið þm. að minnast fósturjarðarinnar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Jóhann Hafstein, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tók þingheimur undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.