10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)

251. mál, getraunir

Sigurður Magnússon:

Herra forseti. Ég þakka síðasta ræðumanni fyrir það að hafa tekið undir málflutning minn hér, en ég vil hins vegar trúa því, að íþróttahreyfingin, framkvæmdanefnd ÍSÍ, íþróttafélög yfirleitt og ungmennafélagshreyfingin út um land, geti líka tekið undir þetta og það sé ástæða til að endurskoða þetta, úr því að málið hefur ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu. Ég er viss um það, að íþróttafólk út um land allt í öllum félögum muni fagna því, og ég trúi því, að hv. þm. muni sjá sig um hönd, þegar málið kemur aftur til n.