16.02.1972
Neðri deild: 42. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

41. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. því á þskj. 338, sem hér er til umr., og einnig í ræðu frsm. n., þá hef ég undirritað þetta nál. með fyrirvara. Þegar þetta mál var til lokaafgreiðslu í sjútvn., taldi ég mig ekki hafa kynnt mér málið nægilega vel til þess að skrifa undir nál. án fyrirvara. Ég hef hins vegar við nánari athugun á málinu síðan talið, að þetta mál sé rétt og það eigi fyllsta rétt á sér, að þetta verði gert. Lýsi ég því yfir, að ég mæli eindregið með samþykkt þessa frv.