06.12.1971
Sameinað þing: 20. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2495 í B-deild Alþingistíðinda. (2702)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf 1. varamanns Framsfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Tómasar Karlssonar ritstjóra, og mælir með því, að kosning varamannsins verði metin gild og kjörbréfið verði samþykkt.