18.04.1972
Sameinað þing: 58. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í D-deild Alþingistíðinda. (3491)

152. mál, landshlutaáætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar þáltill. á þskj. 289. N. hefur leitað umsagnar ýmissa aðila um till. og fengið umsagnir frá flestum þeim sem spurðir hafa verið, og að athuguðu máli leggur hún til, að till. verði samþ. með lítils háttar breytingu, sem tilgreind er í nál. á þskj. 534.