12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (3601)

129. mál, uppbygging þjóðvegakerfisins

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. á þskj. 175 og leitað um hana álits vegamálastjóra. Það varð samkomulag í n. um afgreiðslu till. að leggja til, að hún yrði samþ. í því formi sem segir í nál., og sú brtt., sem er þar fram borin, er samin í samráði við vegamálastjóra. En n. leggur til, að till. verði samþ. þannig breytt.