25.11.1971
Sameinað þing: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í D-deild Alþingistíðinda. (4752)

75. mál, Vestfjarðaáætlun

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég hef ekki séð Vestfjarðaáætlun, en ég skal að gefnu þessu tilefni með ánægju spyrjast fyrir um það, hvort hún sé ekki fyrir hendi, og hlutast til um, að þm. kjördæmisins fái aðgang að henni.