22.03.1973
Neðri deild: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2749 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)

154. mál, ríkisreikningurinn 1970

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv., og samkv venju hefur skrifstofa Alþ. borið tölur frv. saman við ríkisreikninginn sjálfan. N. leggur til, að frv. verði samþykkt.