18.10.1972
Neðri deild: 4. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 17. okt. 1972.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk, þm. Alþb., Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Svava Jakobsdóttir, 4. landsk. þm.

Til forseta Nd.

Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi hefur áður tekið sæti hér á Alþ. á þessu kjörtímabili, og hefur kjörbréf hans verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa.