24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3933 í B-deild Alþingistíðinda. (3487)

121. mál, z í ritmáli

Frsm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hv. allshn. Sþ. var sammála um að mæla einróma með samþykkt þáltill. að undanskildum einum nm., sem var fjarstaddur, þegar málið var afgreitt, og hann hafði raunar á fyrri fundi lýst aths. í þá átt, að hann væri ekki ákveðinn í því að fylgja till. Að öðru leyti stóð n. algerlega saman um afgreiðslu málsins, eins og segir í nái.