04.09.1974
Neðri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

6. mál, fjáröflun til vegagerðar

Frsm. meiri hl. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Mér láðist að geta þess, þegar ég mælti fyrir till. meiri hl. fjh.- og viðskn. áðan, að meiri hl. lítur þannig á, að með till. þeirri, sem hann flytur um lækkun á bensíngjaldinu um 1 kr., ef hún verður samþ., sé niður fallin sú skuldbinding, sem felst í grg. frv. um lækkun þeirra gjalda, sem þar eru talin upp.