20.12.1974
Neðri deild: 34. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)

61. mál, Hótel- og veitingaskóli Íslands

Frsm. (Ingvar Gíslason):

Forseti. Menntmn. d. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. um Hótel- og veitingaskóla Íslands. Eins og fram hefur komið miðast þessi breyting að því að nemendur skólans fái aðild að skólanefndinni. N. hefur sem sagt rætt þetta mál og er sammála um að mæla með samþykkt frv. án breytinga.