20.03.1975
Sameinað þing: 54. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2599 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)

120. mál, fiskvinnsluverksmiðja á Snæfellsnesi

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt um nauðsyn þessarar verksmiðju og læt í ljós um leið þá trú að stjórnvöldum, sem virðast nú tilbúin að ráðstaða — ja, næstum að það sé umsvifalaust eins og 10 milljörðum í tiltekna verksmiðju á Vesturlandi, þ. e. málmblendiverksmiðju sem á að reisa við Hvalfjörðinn, — að þeim stjórnvöldum verði ekki skotaskuld úr því að snara út því fjármagni sem þarf til að koma upp verksmiðju af þessu tagi, sem hér um ræðir, á Snæfellsnesi.