13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3968 í B-deild Alþingistíðinda. (3218)

235. mál, beitingavél

Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. sjútvrh. fyrir svar hans. Ég vissi raunar áður að hann var áhugamaður um þetta mál og hafði stutt að framgangi þess áður en hann fór í ráðherrastól. Þeim mun meira fagna ég nú yfirlýsingu hans um að hann ætlar að halda áfram að beita sér í málinu og beita sér á þann veg að hækka fjárframlög til þess að hrinda málinu í framkvæmd. Gat ég ekki óskað mér betra svars af hálfu hæstv. ráðh. en einmitt þessa og þakka honum fyrir það.