16.05.1975
Efri deild: 97. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4400 í B-deild Alþingistíðinda. (3729)

Starfslok efri deildar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Með því að þetta verður síðasti þingfundur hv. Ed. að þessu sinni, þar sem nú er ákveðið að þinglausnir fari fram síðar í dag, vil ég nú, þegar fundum d. lýkur, nota tækifærið til þess að þakka ykkur, hv. þdm., fyrir samveruna á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og ánægjulega samvinnu. Ég vil þakka skrifurum d. fyrir ágætt starf og varaforsetum fyrir þá aðstoð, sem þeir hafa veitt mér sem forseta. Skrifstofustjóra Alþ. og öðru starfsliði Alþ. færi ég bestu þakkir fyrir ágæta samvinnu.

Nú þegar leiðir skilja óska ég öllum utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og fjölskyldum ykkar, óska ég gleðiríks sumars með von um að við hittumst allir heilir á komandi hausti, þegar Alþ. kemur saman á ný.