24.02.1976
Sameinað þing: 56. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)

93. mál, náttúrugripasafn

Jón Helgason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir svar hans. Í svari hans kom fram það sem ég sagði áðan, að það er þörf á að athuga þessi mál nákvæmlega vegna þess samstarfs sem þarf að leita við Háskóla Íslands og fleiri aðila, að ég tel, í þessum málum Þetta mál hlýtur því að þrífa alllangan undirbúning áður en hægt er að hefja þær framkvæmdir til úrbóta í húsnæðismálum sem að mati þeirra, sem skoðað hafa þessi mál, er þörf á.