18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4604 í B-deild Alþingistíðinda. (4205)

59. mál, tekjustofnar sýslufélaga

Jón Helgason:

Herra forseti. Allshn. fékk til athugunar till. til þál. um tekjustofna sýslufélaga. N. ræddi þetta mál og varð sammála um að leggja til að till. yrði vísað til ríkisstj. þar sem málefni sveitar- og sýslufélaga eða tekjustofna þeirra munu vera í endurskoðun á vegum ríkisstj.