21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)

Þingfrestun

Forseti (Áageir Bjarnason):

Fundur þessi er síðasti fundur Sþ. fyrir jólahlé. Það hefur verið annasamt á Alþingi síðustu dagana og jafnvel næturnar, eins og oft hefur verið áður rétt fyrir jólaleyfi. Um leið og annríki þessu lýkur og jólahelgin nálgast leyfi ég mér að þakka hæstv. ríkisstj. og hv. alþm. fyrir ágætt samstarf í vetur og umburðarlyndi í minn garð. Einnig þakka ég varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis fyrir ágæt störf. Ég óska hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis ásamt fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Utanbæjarþm. óska ég góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ég vona og óska að við megum öll hittast hér heil á húfi og hress í bragði þegar jólaleyfi er lokið.