01.02.1978
Efri deild: 54. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

154. mál, eignarréttur og afnotaréttur fasteigna

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. það er sama að segja um þetta frv. og það sem síðast var hér til meðferðar. Aths., sem eru með lagafrv., skýra það. Það geymir tillögur um breytingar á lögum um eignar- og afnotarétt fasteigna sem eru til samræmis við þær tillögur sem felast í frv. til þinglýsingalaga. Ég leyfi mér að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og til hv. allshn.