28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4223 í B-deild Alþingistíðinda. (3433)

282. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. er skattyfirvöldum með þessari grein gefið mikið vald. Því tel ég nauðsynlegt að sett verði nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd þessarar greinar sbr. heimild í 114. gr., og segi já.