19.12.1978
Efri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1331)

23. mál, tímabundið vörugjald

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það vil svo til að þessi till. hefði ekki komið fram ef ég hefði ekki vakið sérstaklega athygli á því, að hljóðfæri væru í háum tollflokki. Þegar ég vakti athygli á þessu lét ég þess jafnframt getið, að ég treysti hæstv. fjmrh. til þess að beita heimildum í lögum til þess að lagfæra og betrumbæta skipan á vörum í vöruflokka samkv. þessum lögum. Um leið og ég ítreka þessa afstöðu mína segi ég nei.