21.12.1978
Efri deild: 47. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

139. mál, nýbyggingagjald

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um nýbyggingagjald sem kveður á um að leggja skuli sérstakt gjald á nýbyggingar, öll mannvirki önnur en íbúðarhúsnæði. N. varð ekki sammála um þetta frv. Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt, en minni hl, skilar séráliti.