08.03.1979
Sameinað þing: 64. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3107 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)

207. mál, þingrof og nýjar kosningar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ekki hefur það brugðist í vetur, þegar formaður þingflokks Alþfl. gerir grein fyrir atkv. sínu, að það er til þess að segja frá því, hvers vegna hann greiðir það gegn samvisku sinni, sem sýnir að hvorki hefur okkur tekist í 6 mánaða samstarfi við þennan flokk að göfga hann né gera hann fróman, og ekki er gleðileg tilhugsun að þurfa þrátt fyrir allt að vinna með honum framvegis. En þess vegna segi ég nú nei.