08.03.1979
Efri deild: 67. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3113 í B-deild Alþingistíðinda. (2412)

198. mál, fjörutíu stunda vinnuvika

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Í aths. með frv. því til breyt. á lögum um 40 stunda vinnuviku, sem hér er nú til umr., er tekið fram að tilgangur þess sé tvíþættur. Því er annars vegar ætlað að leiðrétta ákveðið misrétti, sem nú er orðið með launþegum þessa lands, og hins vegar að verka sem hemill á þá óhóflega miklu yfirvinnu sem tíðkast hér á landi og allir ábyrgir menn viðurkenna að sé stórfellt vandamál.

Ég vík fyrst nánar að síðasta atriðinu, þá skal fúslega viðurkennt að hér er ekki stigið neitt tímamótaspor í átt til raunverulegrar vinnutímastyttingar, aðeins lagt á vogarskálarnar lítið lóð sem engri byltingu mun valda, en vegur þó óumdeilanlega eitthvað og gerir það réttu megin á voginni.

Ég ætla að allir alþm. séu á einu máli um að vinnutíminn hér á landi sé óhóflega langur, að að því beri að stefna að draga úr honum þar sem slíks er kostur og ekki síst af þeim sökum að ýmislegt bendir til þess, að sömu eða svipuðum afköstum megi ná með aukinni hagræðingu og skipulagi þótt eitthvað sé dregið úr lengd vinnutímans. Það eru svo sjálfsagt skiptar skoðanir um það, hver sé hin rétta leið að því marki og hvort hana beri að fara í stórum áföngum eða stuttum skrefum. Það er sannfæring mín og hluti af mínu almenna lífsviðhorfi, að hægfara, en jöfn og sígandi þróun sé yfirleitt sú tilhögun sem vænlegust er til árangurs. Í þessu ljósi bið ég hv. þm. að skoða þann þáttinn í rökstuðningi með samþykkt frv. sem lýtur að styttingu vinnutíma í landinu.

Ég sagði áður að tilgangur frv. væri öðrum þræði sá að leiðrétta ákveðið misrétti í kjörum launafólks. Að mínu mati er þar um sanngirnismál að ræða. Í aths. með frv. er það skýrt hvernig lögin um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, urðu þess valdandi að sumir launþegar gátu þurft að vinna eftirvinnu í tvær stundir eftir að vinnuvikunni var að fullu lokið, en hjá öðrum tók næturvinna strax við, eins og tíðkast hafði fram til þess tíma, þ. e. a. s. kl. 12 á hádegi á laugardögum. Við þessa óeðlilegu tilhögun hafa launþegasamtökin aldrei getað sætt sig, en leitað þráfaldlega eftir leiðréttingu á þessu atriði í almennum kjarasamningum. Hafa fjölmennir launþegahópar þegar fengið viðurkenningu vinnuveitenda sinna á þessari kröfu, þ. á m. öll hin stóru aðildarfélög innan Málm- og skipasmíðasambandsins, starfsmannafélögin í ríkisverksmiðjunum og hjá álverinu í Straumsvík. Fer þá, þegar svo er komið, best á því, að þessi regla verði almennt látin gilda fremur en sú hending sem því getur oft ráðið hvaða vinnuveitendur menn fá. Sú regla ætti að ráða úrslitum um það, hvort menn þurfi að sæta skertu álagi á laun sín eftir að þeir hafa skilað af sér fullri vinnuviku.

Í aths. með frv. er að því vikið, að á það megi líta sem fyrsta skrefið að því marki að öll eftirvinna verði felld niður í áföngum. Ljóst er að næsta skrefið að því marki verður ekki stigið á þeim forsendum að jafna þurfi misrétti sem orðið er í þjóðfélaginu. Það hlýtur að skoðast sem áframhald þeirrar viðleitni, sem ég hér áður ræddi um, að draga úr hinum langa vinnutíma, sem stundum er nefndur vinnuþrælkun og það með nokkrum rétti. Hvenær þær aðstæður verða fyrir hendi í þjóðfélaginu, að slík breyting sé í raun til þess fallin að ná þessum tilgangi sínum, verður ekki fullyrt um á þessari stundu. Í því efni verður framtíðin að skera úr.

Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til félmn. þessarar hv. d. og 2. umr.