07.04.1979
Neðri deild: 74. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4053 í B-deild Alþingistíðinda. (3161)

230. mál, stjórn efnahagsmála o.fl.

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og við vitum eru til menn sem gjarnan vilja hlaupa undir þiljur og í koju þegar sjór gerist úfinn, en treysta svo á skipsfélaga sína að koma bátnum heilum í höfn. Slíkir menn hafa aldrei verið mikilsmetnir, hvorki á Ísafirði né á Súgandafirði. — Ég segi já.