08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4459 í B-deild Alþingistíðinda. (3533)

287. mál, Framleiðslueftirlit sjávarafurða

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á lögum nr. 108 frá 31. des. 1974, um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem hér er til umfjöllunar, er flutt jafnframt frv. til l. um breyt. á lögum nr. 55/1971, um fiskvinnsluskóla. Meginmarkmiðið með þessum frv., ef að lögum verða, er að tryggja réttarstöðu fiskiðnaðarmanna, en þeir hafa lokið prófi frá Fiskvinnsluskólanum, og setja skýrari ákvæði um lokapróf, verklegt próf svo og starfsþjálfun að prófi loknu. Jafnframt er stefnt að því að afmarka betur en nú er gert hlutverk þessara stofnana varðandi námskeiðahald fyrir matsmenn svo og endurmenntun þeirra.

Í 3. mgr. 10. gr. laga nr. 55/1971, um fiskvinnsluskóla, segir:

„Til þess að öðlast starfsréttindi sem fiskiðnaðarmaður skal nemandi hafa staðist próf úr fiskiðndeild og auk þess lokið 11 mánaða skipulagðri starfsþjálfun, sem lyktar með prófi eða sérstöku verkefni“.

Þau réttindi, sem hér um ræðir, eru ekki skilgreind nánar.

Í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 108/1974, um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, segir hins vegar „lögreglustjóri löggildir matsmenn samkv. tilnefningu forstjóra Framleiðslueftirlits sjávarafurða“

Ekki hafa verið settar neinar reglur um hvað forstjóri Framleiðslueftirlitsins skuli miða við eða styðjast við varðandi tilnefningu matsmanna til löggildingar. Varðandi mat á saltfiski, skreið og síld hefur venjan verið að maður, sem hefur viljað afla sér löggildingar sem matsmaður, hvort heldur um hefur verið að ræða fiskiðnaðarmann eða óskólagenginn mann, hefur verið látinn starfa með löggiltum matsmanni ótiltekinn tíma uns hinn löggilti matsmaður hefur talið viðkomandi mann hafa sýnt nægilega hæfni til að starfa sjálfstætt og hljóta löggildingu sem slíkur. Síðan hefur komið til kasta forstjóra Framleiðslueftirlitsins að meta niðurstöður hins löggilta matsmanns hverju sinni og taka síðan ákvörðun um tilnefningu fyrir lögreglustjóra til löggildingar. Þetta fyrirkomulag þykir skapa óviðunandi aðstöðu fyrir fiskiðnaðarmenn og tel ég nauðsynlegt að afmarka námsefni og námstíma að sérskólanámi loknu til lokaprófs sem veitir matsréttindi. Fyrir því er lagt til í 2. gr. frv. þessa að settar séu nýjar fastmótaðar reglur um þau skilyrði sem fiskiðnaðarmenn, er lokið hafa prófi frá Fiskvinnsluskólanum, þurfa að uppfylla til þess að að þeim skilyrðum fullnægðum geti þeir hlotið löggildingu sem fiskmatsmenn fyrir saltfisk, skreið og saltsíld. Aðrir menn, sem vilja afla sér löggildingar sem matsmenn, verða að hlíta þeim skilyrðum sem nú eru í gildi. Fiskiðnaðarmenn hafa hingað til viðstöðulaust hlotið löggildingu til ferskfiskmats og freðfiskmats, og verður svo væntanlega áfram.

Í 2. gr. frv. eru einnig sett aðhaldsákvæði sem ætlað er að tryggja að fiskiðnaðarmenn, sem mat vilja stunda, haldi við þekkingu sinni. Þá er og með 2. gr. frv. sú breyting gerð, að framvegis löggildi sjútvrn. matsmenn í stað lögreglustjóra. Þetta ætti að verða til hagræðis og bóta að öðru leyti vegna tengsla rn. við Framleiðslueftirlit sjávafafurða, og það ætti einnig að geta leitt til samræmdari krafna og reglna um löggildingu.

Í 3. gr. laga nr. 55/1971, um fiskvinnsluskóla, er mælt fyrir um skyldu skólans til að halda námskeið fyrir starfsfólk í hinum ýmsum greinum fiskiðnaðarins. Í 4. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 71/1973, um mat á saltfiski til útflutnings, segir að Fiskmat ríkisins skuli halda námskeið fyrir fiskmatsmenn samkv. nánari ákvæðum þar um. Þessi reglugerð er eldri en lögin um Framleiðslueftirlit sjávarafurða. Samkv. sérstöku ákvæði í 19. gr. laga nr. 108/1974, um Framleiðslueftirlitið, heldur fyrrgreind reglugerð þó enn gildi sínu. Í lögunum sjálfum eru hins vegar ekki nein bein ákvæði um námskeið á vegum Framleiðslueftirlitsins, en í 3. mgr. 2. gr. almenn fyrirmæli um að þar skuli veita leiðbeiningar um fiskverkun og meðferð sjávarafurða.

Það verður tæpast talin ástæða til að tveir aðilar haldi námskeið um sama efni, þ. e. meðferð og mat sjávarafurða. Vegna ótvíræðra ákvæða í lögum um Fiskvinnsluskólann um skyldu hans til að halda þess háttar námskeið þykir rétt að hann sinni þeirri skyldu einn, en að Framleiðslueftirlitið láti honum í té æskilegt og nauðsynlegt fulltingi í því efni. Þetta fyrirkomulag ætti einnig að létta nokkrum kostnaði af Framleiðslueftirlitinu. Jafnframt frv. þessu er því flutt af hæstv. menntmrh. frv. til l. um breyt. á lögum um Fiskvinnsluskólann, sem er í nánum tengslum við efni þessa frv., og það er æskilegt að þau fylgist sem mest að í meðferð þingsins og hljóti afgreiðslu nokkuð samtímis.

Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til grg. með frv. og geri að till. minni að þessu máli verði vísað til hv. sjútvn.