10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4619 í B-deild Alþingistíðinda. (3763)

270. mál, aðstoð við þroskahefta

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af hinni síðari ræðu hv. 1. þm. Reykn. er alveg ljóst að till. hans mun koma hér til atkv. En ég mun bera till. þannig upp, sem fyrir liggja, að till. hæstv. ráðh. um félmn. verður borin upp fyrr. Það er skoðun mín að þetta mál heyri undir félmn., en að sjálfsögðu mun d. skera úr því við atkvgr.